Á síðustu árum hafa stjörnufræðingar uppgötvað meira en
4000 reikistjörnur á braut um aðrar stjörnur. Þessi
fjarlægu sólkerfi eru fjölbreytt: sum innihalda stóra
gasrisa í líkingu við Júpíter meðan önnur skarta
bergreikistjörnum á borð við Jörðina. Í tilefni af 100 ára afmæli Alþjóðasambands
stjarnfræðinga (IAU), gefst almenningi tækifæri að leggja til
nöfn á fjarlægum sólkerfum. Nöfn sem verða fyrir valinu
munu verða viðurkennd í
gagnabönkum IAU og notuð í stjarnvísindum til
frambúðar.
Íslandi hefur verið úthlutað stjörnunni
HD109246 í stjörnumerkinu Drekanum og fjarreikistjörnunni
HD109246b á braut umhverfis hana. Við þurfum á hjálp þinni
að halda til að finna nafn á bæði stjörnuna og
fjarreikistjörnuna! Frestur til að senda inn tillögur er til 20. október
kl 23:59 að íslenskum tíma. Að honum loknum mun landsnefnd rýna
tillögurnar og velja 5 til 10 sem
munu fara í úrslitakosningu. Almenn kosning mun vera opin frá
23. október til 14. nóvember. Alþjóðasambandið mun tilkynna formlega nöfnin
um miðjan desember 2019. Sigurvegari mun fá tilkynningu í
tölvupósti.
Tillögunni þarf að fylgja nafn, heimilisfang, aldur,
tölvupóstfang og örfá orð um uppruna nafnanna. Sérstakt
tillit verður tekið til hugmynda sem berast
frá grunnskólum og þá er æskilegt að upplýsingar um bekk og
umsjónarkennara að fylgi.
Athugið að ákveðnar reglur gilda um nafngiftina og eingöngu einstaklingar með lögheimili á Íslandi
mega senda inn tillögu.
Hafa ber í huga að tillagan þarf að samanstanda af tveimur nöfnum: einu fyrir stjörnuna og einu fyrir fjarreikistjörnuna. Þó hugmyndaflugið skuli ráða för þá er æskilegt er að nöfnin tvö vísi til sama uppruna eða hafi sama þema og hafi skírskotun í sögu, tungumál eða menningu. Samkvæmt IAU mega nöfnin ekki vera pólitísk, niðrandi, vísa til hernaðar, trúarbragða eða fyrirækja o.s.frv. Kynnið ykkur nafnareglur IAU.
Senda inn tillögu
Sævar Helgi Bragason (kynningarstjóri og tengiliður við IAU)
Kári Helgason (formaður Stjarnvísindafélags Íslands)
Einar Guðmundsson (Háskóla Íslands)
Sigríður Kristjánsdóttir (formaður Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness)
Snævarr Guðmunddson (Náttúrustofu Suðausturlands)
Ása Skúladóttir (Max Planck Institute for Astronomy)
Þórir Sigurðsson (Háskólinn á Akureyri)
Ef spurningar vakna má hafa samband á facebook síðu
Stjörnufræðivefsins eða stjornufraedi @ stjornufraedi.is